
Freska Lennard Segerstråle er frá 1964. Ljósmyndir: mm
Lagfæra freskuna við altari Saurbæjarkirkju
Næstu viku fara fram viðgerðir á freskunni sem var gerð í stað hefðbundinnar altaristöflu í Saurbæjarkirkju í Hvalfirði árið 1964. Hér er um mjög vandasamt verk að ræða vegna þeirrar aðferðar sem beitt er við gerð listaverka af þessu tagi. Það var finnski listamaðurinn Lennart Segerstråle sem gerði fyrir réttum 60 árum síðan freskuna og naut hann liðsinnis múrara við verkið. Freska er gerð þannig að múrari dregur út kalkblandaða steypu og listamaðurinn málar síðan í blauta steypuna. Einungis tvær freskur eru í kirkjum hér á landi; þessi í Saurbæ en önnur öllu stærri í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði en freskumyndirnar sem prýða þá kirkju eru eftir Baltasar Samper og tók það listamanninn tvö ár að gera þær.