Hér situr Guðni milli þeirra Dean Martin og tengdaföður hans Enrique Llorens Izaguirre, en þeir eru frá Englandi og Spáni og því vissara við þessar aðstæður að hafa traustan aðila á milli þeirra. Ljósm. ki

Forsetinn horfði á úrslitaleikinn á Höfða

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands var í gær á leið heim eftir síðustu opinberu heimsókn sína sem forseti. Var hún í Árneshrepp á Ströndum. Eftir vel heppnaða heimsókn stóð úrslitaleikur Englands og Spánar í EM karla í knattspyrnu yfir. Ákvað Guðni að koma við á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi, og fylgjast ásamt heimilisfólki og gestum þess með síðari hálfleik í beinni. Vel fór á með honum og íbúum eins og sjá má.

Forsetinn horfði á úrslitaleikinn á Höfða - Skessuhorn