Mesta sólarhringsúrkoman mældist í Grundarfirði í gær, 227 mm. Hér má sjá hvar rennur yfir veginn í Gilós. Elstu menn mundu ekki jafn mikið vatn m.a. í Grundaránni. Myndina tók Ingi Hans Jónsson

Miklir vatnavextir víðsvegar um Vesturland – 227 mm sólarhringsúrkoma í Grundarfirði

Síðustu daga hefur hellirignt um allt Vesturland. Úrhellinu fylgdi að lækir og ár flæddu í mórauðum lit yfir bakka sína og jafnvel voru einnig dæmi um að nýir og óþekktir lækir hafi orðið til þegar vatn fossaði niður hlíðar. Veðurstofan stóð sig vel í að spá fyrir um veðrið. Gefnar voru út gular viðvaranir vegna vatnavaxta og samhliða þeim hættu á skriðuföllum. Giltu þessar viðvaranir meira og minna frá föstudegi og nú til sunnudagsmorguns. Víða rigndi meira en elstu menn muna, meðal annars í Grundarfirði þar sem Grundaráin var eins og stórfljót yfir að líta og tún og engi fóru á kaf í vatni. Samkvæmt Veðurstofunni var sólarhringsúrkoma á landinu langmest í Grundarfirði og mældist 227 millimetrar. Ef sólarhringsúrkomunni frá því á föstudagsmorgni er bætt við, mældist 325 mm úrkoma í tvo sólarhringa í Grundarfirði frá föstudagsmorgni til sunnudagsmorguns. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur telur það slá nærri úrkomumeti á ekki lengri tíma, en tekur þó fram að það sé ekki staðfest. Það skal því ekki undra að ár- og lækjarfarvegir hafi ekki haft undan.

Miklir vatnavextir víðsvegar um Vesturland - 227 mm sólarhringsúrkoma í Grundarfirði - Skessuhorn