
HVE má nú annast sérnám í bæklunarlækningum
Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala. Meðal verka mats- og hæfisnefndar er að meta hæfi heilbrigðisstofnana eða deilda innan þeirra til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnanir til að annast sérnám lækna, þ.m.t. sérnámsgrunn. Nefndin kom fyrst saman í apríl á þessu ári og hefur nú, eftir úttekt á starfsemi og kennslu, veitt bæklunarlækningum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands viðurkenningu sem kennslusérgrein og kennsludeild, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala.