Fyrirhugað vegstæði er hér teiknað inn á kort.

Telja óþarft að láta Uxahryggjaveg fara í umhverfismati

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastlinn fimmtudag var rætt um fyrirhugaða vegagerð á Uxahryggjum. „Byggðarráð fagnar því að uppbygging Uxahryggjavegar sé komin til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun og í Skipulagsgátt. Uppbygging leiðarinnar er mjög mikilvæg fyrir íbúa og ferðaþjónustu í Borgarbyggð og lykill að því að ferðamenn komist greiðlega landshluta í milli,“ segir í bókun ráðsins.

Telja óþarft að láta Uxahryggjaveg fara í umhverfismati - Skessuhorn