Hópastarf um málstol

Næsta vetur stendur Heilaheill fyrir hópastarfi fyrir fólk með málstol. Um er að ræða hóp svipaðan og starfræktur var á laugardögum veturinn 2022-2023. Markmið þessa hóps er að gefa þátttakendum tækifæri til að efla samskiptafærni sína og gefa þeim mikilvægt tækifæri til að læra af öðrum sem eru í svipaðri stöðu. Þá fer einnig fram fræðsla um orsakir og eðli málstols og bjargráð. Umræðuefni eru fjölbreytt og verða sköpuð tækifæri til að taka þátt í skoðanaskiptum og frásögnum af eigin högum. Áhersla er lögð á málnotkun sem nýtist einstaklingnum í hans daglega lífi.

Hópastarf um málstol - Skessuhorn