
Holl þeirra Birgis og Hilmars fékk sjö laxa þennan dag. Hér kennir Birgir afastráknum sínum réttu tökin. Ljósm. aðsend
Andakílsá er komin yfir 40 laxa
Veiðin í Andakílsá í Borgarfirði er að komast á fleygiferð. Einn daginn í liðinni viku fengust sjö laxar í ánni. ,,Áin hefur gefið 40 laxa og það er ágætt,“ sagði okkar maður sem tíðindamaður Skessuhorns ræddi við. „Veiðimenn hafa verið að fá ágæta veiði síðustu daga. Vatnið er gott í ánni og fiskur að ganga,“ bætti hann við. Aðbúnaður veiðimanna við Andakílsá hefur stórbatnað en eins og greint var frá í Skessuhorni fyrir skömmu var nýtt veiðihús tekið í notkun fyrir upphaf veiðitímabilsins.