Frá Írskum dögum í fyrra. Ljósm. ki

Fjölbreytt dagskrá á Írskum dögum

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst samkvæmt dagskrá í gær og stendur fram á sunnudagskvöld. Þetta er í 25. skiptið sem þessi hátíð er haldin og eins og venja er fyrir verður þétt dagskrá alla hátíðina og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Félagarnir Hjörvar Gunnarsson og Valdimar Ingi Brynjarsson eru viðburðastjórar Írskra daga í ár og Hjörvar leit við á Skessuhorni í vikunni til að ræða málin. Valdimar Ingi var önnum kafinn og komst því miður ekki.

Fjölbreytt dagskrá á Írskum dögum - Skessuhorn