Frá sápuboltanum á hátíðinni árið 2022.

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal haldin um helgina

Um næstu helgi verður bæjarhátíðin Heim í Búðardal haldin frá fimmtudegi til sunnudags. Hún er haldin í júlíbyrjun annað hvert ár, á sléttri tölu. Hátíðin er vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Skessuhorn heyrði í Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur verkefnastjóra hjá Dalabyggð og spurði hana fyrst hvernig undirbúningur hátíðarinnar hafi gengið. Hún segir að hann hafi gengið vel og staðið yfir í nokkra mánuði. „Ákveðið var að svara kalli íbúa með því að hafa meiri dagskrá fyrir börnin og því er sérstök áhersla lögð á fjölskylduvæna dagskrá með viðburðum fyrir börn á öllum aldri. Rekstraraðilar á svæðinu hafa líka nýtt tækifærið vel og bjóða upp á ýmislegt á sínum vegum í dagskránni og sömu helgi er einnig Eldhátíð á Eiríksstöðum svo það verður nóg um að vera.“

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal haldin um helgina - Skessuhorn