
Telur ástand hússins staðfesta forsendur ákvörðunar um niðurrif
Þessa dagana er unnið að niðurrifi elstu tveggja húshluta Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Í kjölfar niðurrifs á um 1.100 fermetrum verður ný 1.350 fermetra skólabygging reist á einni hæð. Gert er ráð fyrir að hægt verði síðar að byggja aðra hæð ofan nýbygginguna. Fyrsti áfangi Kleppjárnsreykaskóla var byggður um 1961 og annar hlutinn nokkrum árum síðar. Þegar ákvörðun um að rífa húsið var tekin var byggt á rannsóknum sem gerðar höfðu verið um ástand þess með tilliti til rakaskemmda, myglu og slæmra loftgæða, í samanburði við að freista þess að endurbyggja húsið. Orri Jónsson svæðisstjóri Eflu á Vesturlandi hefur umsjón með framkvæmdum fyrir hönd Borgarbyggðar. Skessuhorn ræddi stuttlega við hann í byrjun vikunnar, en þá var um það bil hálfnað að rífa skólabygginguna á Kleppjárnsreykjum.