Þessi ameríski veiðimaðurinn fékk meðal annars tvo laxa í Skiptafljóti í Þverá; 90 sentimetra og 98 sentimetra, afar fallega fiska.

Mikið vatn og veiðin að komast á flug

„Það gengur fínt í Þverá og Kjarará; flott vatn og fiskurinn að veiðast um allt,“ sagði Egill Ástráðsson við Þverá í samtali við Skessuhorn seint í gærkvöldi. Það rignir víða um vestanvert landið þessa dagana. „Síðasta holl í Þverá veiddi 16 laxa og það síðasta í Kjarará fékk 23 laxa eftir þrjá daga. Árnar hafa gefið 140 laxa og þetta er að detta í gang.

Mikið vatn og veiðin að komast á flug - Skessuhorn