
Þegar slökkvilið mætti lagði mikinn dökkan reyk frá íbúðinni. Ljósm. mm
Eldur í íbúð fjölbýlishúss á Akranesi
Laust fyrir klukkan 10 í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út. Eldur logaði þá í íbúð á fyrstu hæð fjölbýlishúss við Vallarbraut 1 á Akranesi. Einn var í íbúðinni og komst af sjálfsdáðum út. Talsverður eldur var í íbúðinni og reyk lagði um stigaganginn og torveldaði útgöngu af efri hæðum. Slökkvilið kom til aðstoðar fólki af svölum á þriðju hæð. Að minnsta kosti einn var fluttur undir læknishendur vegna gruns um reykeitrun. Slökkvistarf á vettvangi gekk vel og er nú unnið við að reykræsta íbúðina og stigaganginn.


