
Ungmenni undir pari í skapandi hugsun
Hæfni 15 ára nemenda á Íslandi í skapandi hugsun var undir meðaltali OECD og var frammistaða drengja lakari en stúlkna. Þetta eru meðal niðurstaðna úr könnun PISA á skapandi hugsun sem birtar voru í morgun. Um er að ræða nýjan valkvæðan hluta PISA-könnunarinnar 2022 sem Ísland tók þátt í ásamt 63 öðrum þjóðum.