
Vagn með laxinn fræga sem hann sendi til USA til málunar. Ljósmyndir: af
Sýnir tréskurðarverk í Pakkhúsinu
Í síðustu viku var opnuð sýning í gamla Pakkhúsinu í Ólafsvík á verkum Vagns Ingólfssonar útskurðarmanns. Vagn sýnir verk sem hann hefur unnið síðustu árin, flest unnin í tré. Efniviðurinn er einkum fenginn erlendis. „Það hefur verið mikið rennsli að undanförnu á sýninguna,“ sagði Vagn í samtali við fréttaritara Skessuhorns. Bæði heimamenn og ferðafólk hefur litið við. Sýningin er haldin í tilefni 30 ára afmælis Snæfellsbæjar.