Nýja táknið fyrir Dalina er hannað af Svavari Garðarssyni. Ljósm. dalir.is

Nýtt aðkomutákn við Búðardal kynnt til sögunnar

Á hátíðarhöldum í Búðardal í gær á 17. júní var tilkynnt um hvert yrði nýtt aðkomutákn við kauptúnið. Þorgrímur Einar Guðbjartsson, formaður menningarmálanefndar Dalabyggðar, kynnti verkið og upplýsti loks um höfund þess. Það er Svavar Garðarsson frá Hríshóli í Reykhólasveit sem hannaði þetta nýja aðkomutákn.

Nýtt aðkomutákn við Búðardal kynnt til sögunnar - Skessuhorn