Glæsilegt veiðihús risið við Andakílsá

Veiðifélag Andakílsár í Borgarfirði hefur nú tekið í gagnið nýtt og glæsilegt veiðihús. Stendur það á sömu lóð og fyrra hús sem tekið var af stalli sínum og flutt að Hvanneyri. „Ég held það megi fullyrða að þetta er eitt flottasta veiðihús á landinu,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir í Ausu, formaður veiðifélagsins. „Þetta er 168,5 fermetra timburhús, hannað af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun og það voru PJ byggingar sem sáu um verkið í heild sinni. Bygging hússins hófst í byrjun október í haust, um leið og veiðitímabilinu lauk, og er það nú tilbúið til notkunar, enda hefst veiði í ánni fimmtudaginn 20. júní,“ segir Ragnhildur.

Glæsilegt veiðihús risið við Andakílsá - Skessuhorn