Júlíus Þór Jónsson með fyrsta laxinn úr Grímsá í Borgarfirði.

Júlli með fyrsta laxinn úr Grímsá

„Fyrsti laxinn er kominn úr Grímsá í Borgarfirði og allavega tveir í viðbót hafa fengist í morgun,“ sagði Jón Þór Júlíusson við Grímsá, en veiði hófst þar í morgun. „Fyrsti fiskurinn veiddist í Lækjarfossi og var það 81 sentimetra gullfallegur hængur. Pabbi fékk hann og þetta var snörp fimmtán mínútna viðureign. Fiskinum var landað við Sýslumannsbrotið rétt fyrir neðan Laxfossinn,“ sagði Jón Þór sem bætti því við að þetta byrjaði því vel.