
Á þessu þriðja Hálendiskorti Vegagerðarinnar má sjá að enn eru vegir á hálendinu flestir lokaðir.
Flestir fjallvegir enn lokaðir
Vegagerðin hefur nú gefið út sitt þriðja Hálendiskort, en á því má sjá hvaða fjall- og hálendisvegir eru lokaðir. Helstu breytingar frá síðustu útgáfu Hálendiskorts eru þær að búið er að opna Lakaveg (F206) upp að Fagrafossi en yfir Kjöl (35) er einungis fært fjallabílum norðan Kerlingarfjalla. Búið er að opna Fjallabaksleið nyrðri (208) frá Sigöldu og að Landmannalaugum. Þá er búið að opna Fjallabaksleið nyrðri (F208) upp að Hólaskjóli að austan. Hér um vestanvert landið er búið að opna syðsta hluta vegarins á Arnarvatnsheiði (F578), þ.e. milli Surtshellis og Úlfsvatns. Arnarvatnsheiði er að öðru leyti ófær enda mikil aurbleyta þar víða og klaki ekki farinn úr jörðu. Vegurinn um Kaldadal er einnig lokaður.