Arney frá Ytra-Álandi. Sýnandi er Agnar Þór Magnússon. Ljósm. Kolla Grétars

Arney er hæst dæmda hryssa frá upphafi

Á yfirlitssýningu á Hólum í Hjaltadal í síðustu viku hlaut kynbótahryssan Arney frá Ytra-Álandi í Þistilfirði einkunnina 8,98. Það er hæsta einkunn sem hryssa hefur fengið frá upphafi og þriðji hæsti dómur sem íslenskt hross hefur fengið. Ofar stóðu Viðar frá Skör (9,08) og Sindri frá Hjarðartúni (8,99). Það var Agnar Þór Magnússon í Garðshorni sem þjálfað hefur Arneyju og sýndi hana á Hólum. Ræktandi hryssunnar er Úlfhildur Ída Helgadóttir og er hún í eigu hennar og Ragnars Skúlasonar.

Arney er hæst dæmda hryssa frá upphafi - Skessuhorn