Sveinn Ragnarsson eigandi framan við Hótel Stafholt. Ljósmyndir: hig

Hótel Stafholt opnað í Borgarfirði

Nú í maí mánuði var glæsilegt hótel opnað að Stafholtsveggjum II í Borgarfirði og nefnist það Hótel Stafholt. Á hótelinu eru sautján rúmgóð herbergi, veislusalur fyrir morgunmat og kvöldverð ásamt móttökusal. Anna Renisch, móttökustjóri á Hótel Stafholti, nefndi við blaðamann að nú þegar væri vel bókað en fjórir starfsmenn auk eigandans starfa þar. Allir hjálpast að á hótelinu, sagði Anna, hvort sem það væri að sjá um morgunmatinn, þrif eða móttöku.

Hótel Stafholt opnað í Borgarfirði - Skessuhorn