
Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði á Vesturlandi
Hagstofan birti fyrir helgi heildarfjölda skráðra gistinótta ferðamanna á Íslandi, fyrir árið 2023. Gistinóttum fjölgaði um 16% á Vesturlandi milli áranna 2022 og 2023 en heilt yfir jókst fjöldi gistinótta á öllu landinu um 11,4% á milli ára en þar af var 12,3% aukning á hótelum og gistiheimilum, 13,1% aukning var í annarri innigistingu og 5% aukning á tjaldsvæðum.