Svipmynd frá Fergusondegi á Hvanneyri. Ljósm. úr safni

Fergusondagur á Hvanneyri næsta laugardag

Næstkomandi laugardag verður Fergusondagur opinn öllum á Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri. „Við á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri höfum verið svo heppin að vera í samstarfi við Fergsonfélagið um viðhald vélakosts safnsins síðustu ár. Það hefur verið lengi von beggja aðila að gera meira úr þessu samstarfi og nú í vetur fékkst styrkur til viðburðahalds í sumar sem gengur undir nafninu Fergusondagar í Landbúnaðarsafni,“ segir í tilkynningu.

Fergusondagur á Hvanneyri næsta laugardag - Skessuhorn