
Vel heppnuð Sáta í Stykkishólmi
Um liðna helgi þyrptust þungarokksaðdáendur í Stykkishólm þar sem hátíðin Sátan fór fram. Þá var flösu þeytt frá fimmtudegi til laugardags í íþróttahúsinu undir dynjandi rokktónlist flytjenda. Þarna spiluðu bæði erlend og íslensk harðkjarnabönd og var mikið fjör og góð stemning. Hátíðin fór vel fram og engin mál enda yfirskrift Sátunnar: „Núll þolinmæði fyrir ofbeldi.“ Virðast gestir hafa fylgt þeim fyrirmælum. Það voru reynsluboltarnir í Ham sem lokuðu hátíðinni á laugardagskvöldinu með frábærum tónleikum en I Adapt lokaði föstudagskvöldinu og Sólstafir fimmtudagskvöldinu. Nú þegar er byrjað að auglýsa og selja miða fyrir Sátuna á næsta ári og þar hafa bönd á borð við Skálmöld, Beneath og Momentum boðað komu sína. Rokkþyrstir geta því farið að skipuleggja ferð í Stykkishólm í byrjun júní á næsta ári.