Ný skilti í pakkningunum. Ljósm. Grundarfjarðarbær

Vegvitar og vegprestar settir niður í Grundarfirði

Á næstu dögum verða settir niður vegvitar og vegprestar víða í Grundarfirði en þeir verða leiðarvísar sem vísa fólki áfram í leit sinni að þjónustu á borð við verslun, veitingasölu og afþreyingu, en auk þess að helstu stofnunum og áningarstöðum. Vísarnir eiga að nýtast bæði gestum og nýjum íbúum í bænum en á hverjum vegpresti verður ílangt skilti með QR-kóðum sem vísa á bæjarvef Grunarfjarðarbæjar.