
Fánar dregnir að húni eins og venjan er þegar skemmtiferðaskipin koma. Ljósmyndir: tfk
Fyrsta stóra skipið þetta sumarið
Skemmtiferðaskipið Caribbean Princess sleppti ankerum í Grundarfjarðarhöfn í gær. Þetta er stærsta skipið til þessa en það eru rúmlega þrjú þúsund farþegar um borð. Bærinn fylltist af fólki sem gekk um á meðan aðrir fóru upp í rútur og í skoðunarferðir. Kirkjufellsstrætóinn gekk stanslaust á meðan skipið var í höfn og var á tíma löng röð eftir að komast í hann.