Guðjón Hjaltalín og Ásta Sigurðardóttir. Ljósm. sá

Guðjón Hjaltalín heiðraður á sjómannadaginn

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land í gær. Í Stykkishólmi söfnuðust íbúar saman og lögðu krans við minnismerki látinna sjómanna. Sigurður Páll Jónsson hélt ræðu við minnisvarðann á bryggjunni áður en haldið var í sjómannamessu í Stykkishólmskirkju. Þar var Guðjón Hjaltalín sæmdur heiðurskrossi sjómanna fyrir störf sín. Ellert Kristinsson fór yfir sjómannsferil Guðjóns og æviágrip hans og voru skemmtilegar sögur sem glöddu gesti í kirkjunni.

Guðjón Hjaltalín heiðraður á sjómannadaginn - Skessuhorn