
Hvalfjarðargöng. Ljósm. Skessuhorn
Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í næstu viku
Vegna vinnu í Hvalfjarðargöngum verða þau lokuð þriðjudaginn 4. miðvikudaginn 5. og fimmtudaginn 6. júní frá miðnætti og til kl. 06:30 alla dagana. Vegagerðin bendir á hjáleið um Hvalfjarðarveg (47).