Rakel Mirra er spennt fyrir sumrinu. Ljósm. vaks

Malíbó opnar á Aggapalli

Í morgun opnaði á Aggapalli við Langasand á Akranesi staðurinn Malíbó þar sem boðið er upp á boozt, skálar og beyglur til sölu og auk þess kaffi, gosdrykki og svaladrykki. Rakel Mirra Njálsdóttir er eigandi Malíbó og segist spennt fyrir sumrinu. „Ég vona bara að þetta gangi vel. Ég er að bjóða upp á hollan kost í mat og drykk í fallegu umhverfi og vona að með þessu muni færast enn meira líf og fjör á svæðið þar sem þegar er ýmislegt í boði.“

En hvaðan kom hugmyndin? „Ég var búin að hugsa það í nokkur ár að fara út í svona rekstur og þetta bara kom til mín. Mér fannst vanta heilsubita og hollan matsölustað á Akranesi og svo fannst mér staðsetningin alveg frábær þannig að ég sló til.“

Í sumar verður opið frá þriðjudegi til föstudags frá klukkan 10 til 17, um helgar frá 11-17 en lokað verður á mánudögum. Rakel Mirra segir að opnunartímar geti breyst eftir dögum, ef það er gott veður þá verður kannski opið lengur. Hún verður eini starfsmaðurinn á Malíbó en fær hjálp frá fjölskyldu og vinum ef á þarf að halda. „Ég hlakka mjög mikið til að takast á við þetta verkefni og vona innilega að þessu verði vel tekið af þeim sem eiga leið um strandlengjuna í sumar,“ segir Rakel Mirra, eigandi Malíbó.

Malíbó opnar á Aggapalli - Skessuhorn