Kvikmyndahátíð á vordögum Grundaskóla

Kvikmyndahátíð Grundaskóla á Akranesi verður haldin á vordögum skólans, 3. til 4.júní næstkomandi. Á kvöldhátíðinni, sem verður þriðjudaginn 4. júní og hefst klukkan 19.30, verða í allt 13 stuttmyndir eftir nemendur sýndar á skjánum og dómnefnd veitir verðlaun og viðurkenningu í lok sýningar fyrir góðan árangur. Nemendafélagið sér um sjoppu og skemmtun.

Kvikmyndahátíðin er í samstarfi við Fjölbrautaskólann við Ármúla en nemendur þar sjá um að skipuleggja Kvikmyndahátíð framhaldskólanna sem er haldin árlega í Bíó Paradís. Nemendur FÁ koma og verða með jafningjafræðslu og 24 Hour Challenge fyrir nemendur Grundaskóla á vordögum.

Kvikmyndahátíð Grundaskóla er einnig í samstarfi við Kvikmyndaskóla Íslands en frá þeim kemur fagfólk úr kvikmyndabransanum á Íslandi í svokallað Bransaspjall en það eru pallborðsumræður þar sem nemendur fá tækifæri til þess að spyrja þau spurninga og eiga við þau umræður.

Um 100 nemendur taka þátt í 8.-10.bekk og er markmið hátíðarinnar að efla kvikmyndalæsi, sköpun og kvikmyndaáhuga nemenda. Það er einnig markmið að kynna fyrir nemendum þá náms-og starfsmöguleika sem eru í boði hér á Íslandi innan kvikmyndageirans.

Grundaskóli er með Instagram síðu þar sem koma reglulega inn nýjar upplýsingar, myndir af undirbúningi og slíkt: https://www.instagram.com/grundaskolifilmfestival/

Kvikmyndahátíð á vordögum Grundaskóla - Skessuhorn