
Keppendur á stærsta móti Golfklúbbs Borgarness, Hjóna – og Parakeppni GB, pútta á 18. flöt Hamarsvallar. Ljósm. glh
Gunnhildur í starf framkvæmdastjóra Golfklúbbs Borgarness
Gunnhildur Lind Hansdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness. Gunnhildur hefur langa reynslu og þekkingu úr starfi klúbbsins en hún hefur verið viðloðandi hann frá unga aldri. Hún hefur síðasta árið unnið við markaðssetningu klúbbsins og móttöku gesta á golfvellinum.