Hér er verið að koma tóg á milli Bjargar og Steinunnar og dráttur að hefjast til Ólafsvíkur. Ljósm. aðsend

Steinunn SH tekin í tog til Ólafsvíkur

Klukkan 8:40 í morgun barst björgunarsveitum á Snæfellsnesi útkall þar sem koma þurfti vélarvana báti til aðstoðar. Ekki var um strandveiðibát að ræða, eins og flestir bjuggust við, heldur var það Steinunn SH, snurvoðarbátur frá Ólafsvík sem hafði bilað út af Krossnesvita norðan við Kirkjufell. Veiðarfæri skipsins voru skilin eftir, verða sótt af öðru skipi, og var það björgunarskipið Björg frá Rifi sem tók skipið í tog. Skipin eru væntanleg til Ólafsvíkur nú um hádegisbil í dag. Gott veður er á svæðinu og engin hætta steðjaði að mannskapnum um borð.

Steinunn SH tekin í tog til Ólafsvíkur - Skessuhorn