Sigurður, Reynir og Birkir Snær. Ljósm. vaks

Hafa keyrt fyrir Elkem í 45 ár

Á miðvikudaginn í síðustu viku voru liðin 45 ár frá fyrstu ferð Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar í kísilverksmiðjuna Elkem Ísland á Grundartanga í Hvalfirði en það var 15. maí árið 1979. Fyrirtækið var einnig stofnað þennan dag og fyrsta bílinn fékk Reynir afhentan 25 mínútum eftir miðnætti fyrir fyrstu ferð morguninn eftir. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn á Stóra Lambhaga í Hvalfjarðarsveit í lok síðustu viku og hitti fyrir þá Reyni Jóhannsson, Sigurð Reynisson og Birki Snæ Guðlaugsson sem allir starfa hjá fyrirtækinu.

Hafa keyrt fyrir Elkem í 45 ár - Skessuhorn