Gul viðvörun vegna hvassviðris og rigningar á föstudag

Eftir fremur rólegt veður í dag varar Veðurstofan við lægð á morgun. Gul viðvörun gildir frá því í fyrramálið og fram á aðfararnótt laugardags fyrir vestanvert landið. Það hvessir í nótt, verður suðaustan 13-20 m/sek og rigning eða súld á landinu á morgun, hvassast í vindstrengjum vestantil á landinu. Á spásvæðinu við Breiðafjörð verður suðaustan 13-23 m/s og rigning, hvassast í vindstrengjum á Snæfellsnesi og snarpar hviður. Við Faxaflóa er spáð suðaustan 13-20 m/s og rigningu, hvassast verður í vindstrengjum sem standa af fjöllum og snarpar hviður. Við þessar aðstæður getur verið varasamt ferðaveður fyrir öktæki sem taka á sig mikinn vind. Þá gætu lausamunir farið á ferð.