
Akraneskirkja skilar Gamla Iðnskólanum
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 16. maí síðastliðinn var tekið fyrir erindi frá Akraneskirkju vegna skila á Skólabraut 9, sem er Gamli Iðnskólinn. Í bréfi Akraneskirkju kemur fram að kirkjan fékk húsnæðið afhent frá Akraneskaupstað með gjafasali 23. apríl 2008. „Frá árinu 2008 hefur kirkjan einkum nýtt húsnæðið fyrir barna- og unglingastarf sem fer fram yfir veturinn og nokkrar vikur á sumrin þegar hið vinsæla ævintýranámskeið er haldið. Þá hefur húsnæðið einnig nýst vel við fjölmennar útfarir þegar bæta þarf við sætum. Húsið hefur verið notað fyrir ýmsa aðra viðburði og fjölbreytta starfsemi kirkjunnar. Í húsnæðinu er einnig þvottahús fyrir kirkjuna og geymslur. Margir hafa einnig sótt í að halda viðburði í húsinu, svo sem listsýningar og tónleika. Húsið hefur því verið vel nýtt af kirkjunni og fleiri haft afnot af húsinu, íbúum bæjarins til ánægjuauka.“