Valný að hræra í súpunni skömmu áður en gestir komu í hús. Ljósm. mm

Fiskisúpan hennar Valnýjar slær í gegn

Á opnu húsi í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi síðastliðinn föstudag bauð Valný Benediktsdóttir upp á súpu. Þetta er fiskisúpa sem hún eldaði forðum daga þegar hún vann við matseld í HB húsinu fyrir starfsfólkið það. Upphaflega uppskriftin, segir Valný, birtist í Vikunni fyrir áratugum síðan og hét þá „Jólasúpan hennar mömmu.“ Valný notar uppskriftina sem grunn, en eins og gengur með góðar súpur breytir kokkurinn þeim eftir eigin höfði. Þegar HB hætti starfsemi í húsinu á sínum tíma varð mappan með uppskriftinni eftir í eldhúsinu. Þótti vel við hæfi að þegar boðið var til opins húss, meðal annars fyrir fyrrum starfsfólk HB og Co, að laga súpuna og bjóða gestum að smakka.

Fiskisúpan hennar Valnýjar slær í gegn - Skessuhorn