Frá Stykkishólmi. Ljósm. gj

Vilja tvískiptar sorptunnur á ljósastaura

Fyrsti fundur bæjarstjórnar unga fólksins fór fram síðastliðinn miðvikudag, 8. maí, í Stykkishólmi. Bæjarstjórn unga fólksins er skipuð ungmennum úr ungmennaráði sem sjá um fundarstjórn og undirbúning fundar. Á fundum bæjarstjórnar unga fólksins kynna fulltrúar unga fólksins áherslumál og bæjarfulltrúar sitja til svara. Á fundinum var bæjarstjórn meðal annars hvött til þess að leggja áherslu á að tryggja félagsmiðstöðinni betra húsnæði fyrir sína starfsemi. Lagðar voru fram tillögur að bættri og aukinni götulýsingu og bæjarstjórn hvött til að skoða möguleika á tvískiptum sorptunnum á ljósastaura og gefa þannig gangandi vegfarendum kost á að flokka sorp.

Vilja tvískiptar sorptunnur á ljósastaura - Skessuhorn