
Fjör, gleði og dans á Diskóeyjunni
Söngleikurinn Diskóeyjan var frumsýndur í Bíóhöllinni á Akranesi í gærkvöldi. Um er að ræða uppfærslu nemenda í 8.-10. bekk í Brekkubæjarskóla og koma rúmlega 90 unglingar fram á sviði í sýningunni. Í stuttu máli gerist leikritið á diskóeyju þar sem rekinn er fágunarskóli fyrir þæg og óspennandi börn sem stefna á lögfræði. Systkinin Daníel og Rut eru send þangað þar sem prófessor nokkur ræður ríkjum og hann hefur lítinn áhuga á lærdómi en er meira hrifinn af glimmeri, pallíettum og almennri gleði.
Um er að ræða afar litríka, fjörlega og skemmtilega sýningu þar sem nemendur Brekkó fara á kostum í leik, dansi og söng. Guðni Geir Jóhannesson leikur prófessorinn af miklum móð og er stjarna sýningarinnar. Hann er mjög öruggur í sínum leik, með ráma rödd en skýrmæltur og er góður söngvari. Það mæðir mikið á Guðna Geir þar sem hann er á sviðinu nánast allan tímann en það vefst lítið fyrir honum. Viðar Jarl Bergþórsson og Sandra Björk Freysdóttir leika Daníel og Rut og eiga góðan samleik, Óðinn Örn Kjærnested og Stígur Bergmann Þórðarson eru skemmtilegir sem yfirdvergar og Rósant Leó Ólafsson leynir á sér í hlutverki varúlfs. Aðrir leikarar standa sig allir mjög vel og það er virkilega gaman að sjá hve margir fá að láta ljós sitt skína í svona stórum hópi. Söngatriðin voru vel flutt og flytjendur ansi örugg í flutningi sínum. Söngdívurnar stóðu sína plikt og studdu vel við söngvarana í lögunum og ekki skemmdi allt glimmerið! Dansararnir taka virkan þátt í sýningunni og setja mikinn svip á hana. Dansatriðin voru mjög flott og það sást vel hvað dömurnar höfðu gaman af að dansa í takt við diskótónlistina og lyftu sýningunni á köflum upp á annað plan í stuði og skemmtilegheitum.
Tónlistin er í aðalhlutverki í sýningunni og það skemmdi lítið þó undirritaður hefði ekki unnið heimavinnuna og hlustað á lögin í Diskóeyjunni á Spotify. Lögin sem eru notuð í sýningunni eru öll frekar grípandi við fyrstu hlustun og þá er bætt við nokkrum lögum sem áhorfendur þekkja sem koma öllum algjörlega í stuðgírinn. Hljómsveitin er ansi þétt og vel spilandi þrátt fyrir ungan aldur og það sést langar leiðir og alveg upp á aðra hæð að hún er virkilega að fíla sig í flutningi sínum. Þar má nefna fremstan meðal jafningja taktfasta trommarann, Magnús Inga Sigfússon úr 8. bekk, sem fer hreinlega á kostum og verður að segjast að þar er virkilegt efni á ferðinni.
Sýningin tekur um eina og hálfa klukkustund með hléi og hentar því vel fyrir börn frá sirka fimm ára aldri og upp úr. Það verður að hrósa nemendum Brekkó og öllum þeim sem koma að þessari sýningu fyrir stórkostlega skemmtun, stanslaust stuð og stemningu á sviði Bíóhallarinnar. Þessi sýning er enn ein rósin í hnappagatið í menningarlífi Akraness undanfarna mánuði og því um að gera að skella sér á Diskóeyjuna sem fyrst til að styðja við þessa ungu og frambærilegu krakka. Vel gert og til lukku allir!
vaks