
Fjölmenni var saman komið í menningarhúsinu Hjálmakletti þegar skrifað var undir samstarfsyfirlýsingu um Öruggara Vesturland. Ljósm. hig
Farsældardagurinn og undirritun verkefnisins „Öruggt Vesturland“
Stór dagur í málefnum barna á Vesturlandi var í gær þegar framlínufólk sem starfar með og fyrir börn kom saman í Hjálmakletti í Borgarnesi. Farsæld barna var til umræðu og lagt á ráðin um innleiðingu farsældarlaganna hjá sveitarfélögum og öðrum stofnunum sem sinna þjónustu við börn í landshlutanum. Ráðherra mennta- og barnamála, Ásmundur Einar Daðason, opnaði viðburðinn með ávarpi og undirritun samkomulags við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem felur í sér ráðningu verkefnastjóra í farsældarmálum. Er Vesturland fyrsti landshlutinn þar sem slíkt samkomulag er undirritað.