
Byggja þrjár nýjar spennistöðvar í Snæfellsbæ
Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar 3. maí sl. kom fram umsókn frá Rarik þar sem óskað var eftir byggingarheimild fyrir þremur nýjum spennistöðvum á lóðunum Hraunási 8 Hellissandi, Háarifi 8 Rifi og Hjallabrekku 9 Ólafsvík. Um er að ræða tíu fermetra hús og eru þau sambærileg spennistöðinni sem stendur við hliðina á ráðhúsi Snæfellsbæjar.