
Orkustöðin í Borgarnesi býður í augnablikinu lægsta eldsneytisverðið. Ljósm. úr safni/mm
Barist um besta verðið í Borgarnesi
Á vefsíðunni GSMbensín.is er síkvik verðkönnunarþjónusta fyrir bensín- og olíuverð í landinu. Hægt er að velja landshluta og sjá hvar besta verðið er að finna hverju sinni. Atlantsolía auglýsti í vikunni að fyrirtækið hafi bætt Borgarnesi við yfir þá staði sem bjóða ódýrasta bensínið. Fyrirtækið er með söludælur á Sólbakka, ofan við bæinn. Þar er líterinn af bensíni nú fáanlegur á 292,80 krónur og líter af díselolíu á 302,20 kr. En þetta er hins vegar ekki lægsta verðið í Borgarnesi því Orkan við Brúartorg býður bensínlítrann á 292,70 krónur, eða tíu aurum minna, og dísel á 302,10 kr. lítrann. Næstlægsta verðið er síðan á Orkustöðvum á öðrum stöðum á Vesturlandi, þ.e. Baulunni, Hreðavatnsskála og í Stykkishólmi.