Egill Gunnarsson bústjóri fræðir nemendur um fjósið á Hvanneyri og það sem þar fer fram. Ljósmyndir: Hvanneyrarbúið

Tíundu bekkingar í Borgarbyggð heimsóttu starfsstöðvar Landbúnaðarháskólans

Í liðinni viku heimsóttu tíundu bekkingar við grunnskóla Borgarbyggðar Hvanneyri og starfsstöðvar LbhÍ. Fengu ungmennin leiðsögn um starfsemi Landbúnaðarháskólans og heimsóttu m.a. skólabúið á Hvanneyri, Hesti og á Mið-Fossum. Heimsóknin var undirbúin í samstarfi Rótarýklúbbs Borgarness og grunnskólanna í sveitarfélaginu en í þessum heimsóknum hefur klúbburinn staðið fyrir því til áratuga að nemendur geti kynnt sér stofnanir og fyrirtæki í héraði og öðlast sýn á fjölbreyttri starfsemi og starfsumhverfi.

Tíundu bekkingar í Borgarbyggð heimsóttu starfsstöðvar Landbúnaðarháskólans - Skessuhorn