Tvílemba með ómörkuð lömb. Ljósm. Steinunn Árnadóttir

Verulega verður fækkað í fjárstofninum á Höfða í haust

Matvælastofnun sendi í gærkvöldi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar að undanförnu um sauðfjárhald á bæ í Borgarfirði. Þar er bæði vísað til umfjöllunar í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þarna á stofnunin við sauðfjárbúskapinn á Höfða í Þverárhlíð. „Aðkoma Matvælastofnunar hefur verið talsvert gagnrýnd, stofnunin vænd um að sinna ekki skyldum sínum og fleira. Af þessari ástæðu vill stofnunin taka fram að vel er fylgst með málinu og fara starfsmenn stofnunarinnar oft í eftirlit til að fylgja eftir kröfum um úrbætur. Séð er til þess að féð fái nægt fóður og heilnæmt vatn. Lömb eru merkt, ám og lömbum gefið ormalyf og lömb meðhöndluð við skitu ef þörf er á. Féð er síðan fært í annað hólf að þessu loknu.“