
Héldu stóra flugslysaæfingu á Höfn
Í gær fór fram stór æfing viðbragðsaðila á flugvellinum á Höfn í Hornafirði, þar sem æfð voru viðbrögð við flugslysi. Alls tóku um 140 manns þátt í æfingunni og þar af voru 20 leikarar. „Æfingin gekk afar vel og reyndi á helstu þætti bæði á vettvangi en einnig í samhæfingu aðgerða,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. Sambærilegar æfingar eru haldnar af og til í öllum landshlutum. Nokkuð er síðan síðast fór fram sambærileg æfing hér á Vesturlandi og því ákvað Skessuhorn að birta nokkrar myndir frá þessari fyrir austan.