Lagnaskurðurinn og inn í hús. Ljósm. tfk

Byrjað að leggja lagnirnar í Grundarfirði

Nú er vinna hafin við að leggja prufulagnir til að skoða vatnsmagn úr borholunum sem boraðar voru á síðasta ári í Grundarfirði. Grundarfjarðarbær hlaut eins og kunnugt er 34 milljóna króna styrk til orkuskipta í sundlaug, grunnskóla og íþróttahúsi bæjarins. Styrkurinn gerir bæjarfélaginu kleift að þróa orkuskipti sín nánar og hugsa næstu skref og lausnir sem miða að því að nýta orku og lækka kyndingarkostnað.

Byrjað að leggja lagnirnar í Grundarfirði - Skessuhorn