Frá opnu húsi á Varmalandi. Ljósm. GBF

Opið hús var í Grunnskóla Borgarfjarðar

Síðasta fimmtudag var opið hús hjá öllum deildum Grunnskóla Borgarfjarðar sem staðsettar eru á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi og var tilefnið Barnamenningarhátíð Borgarbyggðar. Með þessu vildu nemendur og starfsmenn kynna skólann sinn fyrir fólkinu í kringum sig; foreldrum og samfélaginu.

Opið hús var í Grunnskóla Borgarfjarðar - Skessuhorn