
Fagurverk fékk lóðafrágang við Jaðarsbakka
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar sl. mánudag var lögð fram opnunarskýrsla tilboða í lóðarfrágang í kringum íþróttahúsið á Jaðarsbökkum og tengingar yfir Innnesveg. Eftir yfirferð tilboða og leiðréttingar voru gild tilboð eftirfarandi: Fagurverk ehf: 240.754.200 krónur, Stéttafélagið ehf: 321.146.900 kr. og E. Sigurðsson ehf: 417.687.340 kr. Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 269.574.600 kr. Skipulags- og umhverfisráð fól sviðsstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Fagurverk ehf., með fyrirvara um hæfi bjóðanda.