
Borgarneskirkja. Ljósm. mm
Friðlýsing Borgarneskirkju fer fram á uppstigningardag
Á uppstigningardag, fimmtudaginn 9. maí, er stefnt að athöfn þar sem Borgarneskirkja verður formlega friðlýst. Dagskrá hátíðardagsins verður með þeim hætti að messað verður í kirkjunni klukkan 11. Klukkan 14 verður svo dagskrá í kirkjunni þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra flytur ávarp. Þá mun sr. Þorbjörn Hlynur Árnason fyrrum sóknarprestur ávarpa gesti en því næst flyja Pétur H. Ármannsson og Björn Jón Björnsson erindi um Halldór H. Jónsson, arkitekt kirkjunnar, og kirkjubygginguna. Undirritun ráðherra um friðlýsingu fer síðan fram í eða við kirkjuna, fer eftir veðri. Að því loknu verður gengið til Safnahússins við Bjarnarbraut þar sem dagskrá verður fram haldið.