
Böndum komið á strokuhrossin. Ljósm. mm
Skelltu sér í bæjarferð
Fimm hross sluppu úr gerði við gamla þjóðveginn á Akranesi í gær. Drifu þau sig í kaupstaðarferð og má segja að ferð þeirra hafi vakið talsverða athygli á íbúasíðunni á Facebook. Hrossin voru ekkert á því að láta ná sér enda höfðu þau í þessari skammvinnu bæjarferð fengið að kynnast bragðinu af nýgræðingnum, sem þau kunnu vel að meta. Eftir nokkurn eltingarleik tókst, með aðstoð lögreglu, íbúa og eigenda hrossanna, að ná þeim í aðhald við eina íbúðablokkina. Strengd var rafgirðing umhverfis hópinn og búið til aðhald; hrossin mýld og þeim komið á sinn stað að nýju.