
Frá kosningahátíð Nýrrar sýnar sem haldin var á Fosshótel. Ljósm. Guðlaugur Albertsson.
N listi hlaut meirihluta í nýju sameinuðu sveitarfélagi
Í gær var gengið til kosninga til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Íbúar samþykktu á síðasta ári sameiningu sveitarfélaganna. Tveir listar voru í boði; N - listi Nýrrar sýnar og D listi Sjálfstæðisflokks og óháðra. Listi Nýrrar sýnar hlaut meirihluta bæjarstjórnarsæta, eða fjögur af sjö. Hlaut N – listi 377 atkvæði og D listi 268. Á kjörskrá voru 1001 en íbúar sameinaðs sveitarfélags eru alls um 1500. Kjörsókn reyndist 66,43%. Bæjarstjórn sameinaðs sveitarfélags skipa samkvæmt því: Páll Vilhjálmsson (N), Friðbjörg Matthíasdóttir (D), Jenný Lára Magnadóttir (N), Maggý Hjördís Keransdóttir (D), Gunnþórunn Bender (N), Tryggvi B. Bjarnason (N) og Jóhann Örn Hreiðarsson (D).