Húsin á bæjarhólnum. Ljósm. úr safni

Reynt var að kveikja í fjóshlöðunni á Fiskilæk

Eftir miðnætti í nótt var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað að eyðibýlinu Fiskilæk í Melasveit. Eldur var þá laus í fjóshlöðunni á bæjarhlaðinu. Þá var einnig beðið um aðstoð Slökkviliðs Borgarbyggðar. Eldur var í gömlum heyrudda í hlöðunni og líklegt að kveikt hafi verið í. Fengið var tæki sem gat rótað í heystabbanum og eldurinn slökktur með því að dæla inn miklu af vatni.

Reynt var að kveikja í fjóshlöðunni á Fiskilæk - Skessuhorn